Hólmfríður's profileSíðan mínPhotosBlogListsMore Tools Help

Síðan mín

Hólmfríður Jónsdóttir

This person's network is empty (or maybe they're keeping it private).
May 25

Vá langt síðan

jamm lnagt síðan ég hef skrifað hérna en ég er eiginlega hætt með þetta svæði en ef þið viljið skoða það sem ég er að gera þá farið á
 
http://www.scrapbook.com/places/Hofy     Þar er ég með kortin og skrappið. Skrifa ekki oft en anað slagið. Er búin að komast að því að ég er ekki þessi blogg týpa.
December 26

Gleðileg jól

Já jólin komin og ég segi bara gleðileg jól við alla sem lesa þetta. Svo setti ég loksins inn myndir af síðunumí albúmið þeirra pabba og mömmu gat ekki gert þar fyrr þar sem þá hefðu þau fattað jólagjöfina hehe.En semsagt ég gat klárað hana og var mjög ánægð með útkomuna og þau líka svaka ánægð með albúmið sem er best að vita. Svo gaf ég ömmu ramma og Guju og Dóra og allir mjög ánægðir með allt. :) Jæja ekkert að frétta. Bið að heilsa í bili.
November 13

Ný kort

Ný kort í nýjasta albúminu .
November 08

Hæ hæ

Ekki beint dugleg að skrifa hérna enda nóg að gera hjá mér. Jebb komin í skóla voða flott hjá mér. Er í grunnmenntaskóla Mímis og það er nú sko alveg nóg fyrir mig. Hef ekki verið í skóla í 20 ár.Hm já 20 ár trúið þið því ? En það er líka svona hrikalega gaman enda klassahópur á ferð. Lennti í frábærum hóp við erum 19 semsagt 17 konur og 2 karlmenn,  og það er mikið gaman hjá okkur öllum.Hef aldrei getað lært stærðfræði bara einfalt mál en ég er alveg að koma sjálfri mér á óvart í því núna. Ekki kannski erfið stærðfræði að margra mati sem ég er í en hey nóg fyrir MIG. Svo næsta haust stefni ég á að fara í leikskólaliðann sem er líka kenndur hjá Mími (+Eflingu) og þaðeru 4 annir. Semsagt nóg að gera. Svo er vinnan og margt annað í gangi. En ég var að setja inn kort allt jólakort. Ekki verið miki í neinu föndri undanfarið alveg eitthvað andlaus en er held ég að komast í gang. Bestu kveðjur úr Grafarvoginum

September 07

Komin !

Hæ hæ ! Jæja best að skrifa smá. Fór austur í endan júlí og skemmti mér mjög vel. Langaði strax heim aftur eiginlega þar sem ein vinkonan eignaðist barn sama dag og ég fór austur,svo það var mikil spenna að komast heim og sjá. En ég skemmti mér vel og gerði allt mögulegt. Kíkti á Neistaflug og það var svona lala.Mætti hafa verið hlýrra en hey þá var bara að klæða sig betur. Svo var farið í picknick í Fannardal með hele familien og það var svo "hlýtt" að sumir voru undir teppi eiginlega allann tímann. En samtvarétið leikið og tínt ber. Svo var farið á sjó að fiska og átti bara aðeins að setja færið niður en vá það var bara ekki hægt að stoppa og hefðu allir viljað veiða meira en það þarf nú að torga aflanum ekki nema standa út á horni og selja fisk.hehe. Nú svo var auðvitað skroppið í Mjóafjörð og þar var þoka mikil við komnu en svo bar volla allt í einu var komin sól og brakandi blíða. Mikið var kastað af steinum í sjóinn aðalega af Valþóri sem greinilega hefur gaman af því að kasta steinum. Hinir voru flestir að veiða í ánni og ekkert að hafa. Mamma auðvitað með eðal veitingar tertur og fínerí og svo skemmtilega vildi til að amma heitin (móðuramma)  átti afmæli þennan dag 8 ágúst og sniðugt að við vorum þarna og með tertur. Um kvöldið var svo allbærileg grillveisla hjá ásgeir bróðir og co á blómsturvöllunum og bara borðaðút í garði annsi skemmtilegt. Allavega fannst krökkunum það . Var svo heppinn að Margrét Ólafía var fyrir austan hjá pabba sínum (Ásgeir) alltaf svo gaman að hitta hana. Familíangaf henni bara hjól í afmælisgjöf ákváðum það bar þar sem hana langaði svo í hjól.Enda var hún spenntað koma heim og prufa. Fór norður á Akureyri áföstudeginum og átti íbúð þar í viku og leið okkur vel þar og fórum á Dalvík á Fiskidaginn. Fórum reyndar daginn fyrir fiskidaginn að smakka fiskisúpu og hitta fullt af skemmtilegu fólki. Fiskidagurinn var ágætur og reyndi ég að selja mannfjöldanum einhver kort en varð mjög vonsvikinn að selja bara 3 já ég sagði 3 ferlega fúlt. Ég pakkaði bara saman eftir 2 tíma sölu og fór að skoða mig um græddi meira af því held ég. Svo var kíkt í Safnasafnið rétt við Akureyri og svo inn í Hrafnagil á handverksýninguna og svo auðvitað í jólahúsið. Svo var bara mikið slakað á. Kom heim um 20 ágúst og var það mjög gott að koma heim eftir langt ferðalag. Byrjaði að vinna 27 og fínt að koma aftur í vinnu en allt ný börn og þarf að leggja sig fram við að læra nöfnin og hvernig hver er og hvað hver vill. En það kemur strax. ER svo að byrja í skólanum 24 september og verð einu sinni í viku. Fer svo á fagnámskeið 2 í okt vonandi svo það er nóg að gera. JÆja best að hætta þessu rugli og fara skrappa . Já haldið að minns sé ekki kominn í skrappið og sekk dýpra og dýpra í það með hverri vikunni sem líður hehe. En bara gaman. SEgi bara bless í bili over and out úrGrafarvoginum. 
 
Photo 1 of 20
Thanks for visiting!
Please wait...
Sorry, the comment you entered is too long. Please shorten it.
You didn't enter anything. Please try again.
Sorry, we can't add your comment right now. Please try again later.
To add a comment, you need permission from your parent. Ask for permission
Your parent has turned off comments.
Sorry, we can't delete your comment right now. Please try again later.
You've exceeded the maximum number of comments that can be left in one day. Please try again in 24 hours.
Your account has had the ability to leave comments disabled because our systems indicate that you may be spamming other users. If you believe that your account has been disabled in error please contact Windows Live support.
Complete the security check below to finish leaving your comment.
The characters you type in the security check must match the characters in the picture or audio.